Tata, eigandi Jaguar Land Rover, hefur staðfest áform sín um að byggja sína stærsta rafhlöðuverksmiðju í Bretlandi. Verksmiðjan verður staðsett í Somerset og munu 4.000 verkamenn koma til með að starfa í henni.
Fyrirtækið mun fjárfesta 4 milljarða punda í verkefnið en talið er að ríkisstjórnin muni veita styrki upp á nokkur hundruð milljóna punda.
Nýja verksmiðjan verður ein sú stærsta í Evrópu og mun framleiða rafhlöður fyrir bíla Jaguar Land Rover eins og Range Rover, Defender og Jaguar. Verksmiðjan mun einnig koma til með að framleiða rafhlöður fyrir aðrar bílategundir en stefnt er að því að hefja framleiðslu árið 2026.
„Þetta mun hjálpa við að bæta hagkerfi okkar með því að ýta undir forystu okkar í rafhlöðutækni og á sama tíma skapa 4.000 ný störf og þúsundir til viðbótar í áfangakeðjunni allri,“ segir Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands.
Sarah Olney, talsmaður fjármálaráðuneytis frjálslyndra demókrata, segir ákvörðun Jaguar Land Rover vera kærkomin eftir margra ára vanrækslu ríkisstjórnarinnar í suðvesturhluta landsins. Verksmiðjan er einnig sú fyrsta á vegum Tata sem er ekki byggð á Indlandi og eru vonir um að hún muni hjálpa bílaframleiðandanum að skipta alfarið yfir í rafbíla.