Joe & The Juice hefur ákveðið að draga sig úr útboði um rekstur veitingastaða á Keflavíkurflugvelli. Báðum sölustöðum Joe & The Juice á vellinum, annars vegar á efri hæð eftir að farið er í gegnum öryggisleitina og hins vegar á neðri hæð við brottfararsal, verður því lokað á næstu mánuðum eftir tæplega átta ára veru í flugstöðinni.

Í tilkynningu Joe & The Juice segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna skilyrða Isavia um að allir þeir veitingastaðir sem verði fyrir valinu í útboðinu þurfi að bjóða bæði upp á áfengi og tilbúna rétti.

„Joe & The Juice hefur ekki selt áfengi á sínum stöðum og sömuleiðis hefur staðurinn aldrei boðið upp á mat sem útbúinn var mörgum klukkustundum áður. Þvert á móti er það eitt helsta einkenni staðarins að bjóða upp á eins ferskar samlokur og djúsa og mögulegt er, sem útbúnir eru eftir pöntun,“ segir í tilkynningunni.

„Joe & The Juice hugnast einfaldlega ekki að gera þær breytingar á vöruvali sínu sem Isavia setur kröfu um á Keflavíkurflugvelli, þótt það þýði að félagið eigi ekki möguleika á að halda áfram rekstri í flugstöðinni.“

Joe & The Juice rekur áfram níu staði á höfuðborgarsvæðinu og á Selfossi, en sá nýjasti var opnaður í desember og er við Birkimel í Vesturbænum. Stefnt er að opnun fleiri staða á næstunni.

Birgir Bieltvedt, eigandi Joe & The Juice:

„Joe & The Juice var með samning um rekstur í flugstöðinni til áramóta og við vissum að það stæði til að fara í útboð. Það kom okkur hins vegar á óvart síðasta sumar, þegar útboðsgögnin lágu fyrir, hvers konar breytingar ætti að gera á veitingasölu í flugstöðinni. Við ákváðum engu að síður að taka þátt í útboðinu.

Í ferlinu varð sífellt ljósara hversu mikil áhersla var lögð á ýmsa þætti sem hefðu þýtt stórfelldar breytingar á „konsepti“ Joe & The Juice, t.a.m. krafa um sölu áfengis og ýmissa tilbúinna rétta. Í útboðinu var verið að bjóða út rekstur þriggja staðsetninga og við lýstum því yfir að við værum tilbúin til að vera með þriðja staðinn undir nýju vörumerki þar sem selt yrði áfengi, gos og tilbúnir réttir en að lokum gátum við ekki sætt okkur við að breyta hinum tveimur stöðunum og hverfa með því frá grunngildum Joe & The Juice um ferskleika.

Okkar upplifun er að það sé enginn skortur á stöðum sem bjóða tilbúna rétti og áfengi í flugstöðinni og erfitt að sjá af hverju það megi ekki vera sem mest fjölbreytni í veitingaframboði vallarins. Kannanir sem gerðar hafa verið á meðal ferðalanga sýna að þeir vilja helst sjá vörur gerðar á staðnum, ferska djúsum og hristinga ásamt kaffi og samlokum á flugvellinum. Joe & The Juice uppfyllir að okkar mati vel þessar væntingar flugfarþega og okkur finnst þetta fyrst og fremst mjög leitt, enda hafa staðirnir verið með þeim vinsælustu á flugvellinum undanfarin ár.“