Alþjóðlega verkfræði- og efnaframleiðslufyrirtækið Johnson Matthey hefur skrifað undir samstarfssamning við Carbon Iceland. Samkvæmt samningnum mun Johnson Matthey hanna vistvæna rafeldsneytisframleiðslu fyrir Carbon Iceland á Grundartanga.

Zinovia Skoufa, framkvæmdastjóri hjá Johnson Matthey, og Hallgrímur Óskarsson, framkvæmdastjóri Carbon Iceland, skrifuðu undir samninginn þann 27. mars sl.

Johnson Matthey mun þá taka að sér hönnun þess hluta framleiðslu Carbon Iceland sem snýr að hvörfun vetnis og fangaðs koltvísýrings og búnaðar sem þarf til framleiðslu á vistvænu eldsneyti sem nota má á íslensk skip og í flugi.

Í tilkynningu segir að fyrirtækið eigi sér 207 ára sögu og hafi í áratugi hannað og framleitt búnað í eldsneytis- og efnaiðnaði.

„Nú er rétti tíminn fyrir íslenska aðila, opinbera og úr einkageiranum, að tryggja að vistvænt eldsneyti verði tekið frá notkun hér á landi svo Ísland njóti ábatans með tilliti til samdráttar losunar frá samgöngum,“ segir Hallgrímur Óskarsson, framkvæmdastjóri Carbon Iceland.

Fyrirhuguð verksmiðja Carbon Iceland á Grundartanga kemur til með að framleiða rafmetanól sem nýta má sem vistvænt eldsneyti fyrir skip, flug og stórvirkar vélar og flutningatæki.

Markmiðið er að eldsneytið verði nýtt sem mest á Íslandi og geti því dregið úr innflutningi á jarðefnaeldsneyti en Carbon Iceland telur að með notkun eldsneytisins megi draga úr losun um tæplega 50 til 70%.