Jói Útherji, ein elsta knattspyrnuverslun landsins, opnar nýja verslun í Smáralind á næstunni.

Verslunin var stofnuð árið 1999 af feðgunum Magnúsi V. Péturssyni og Valdimar P. Magnússyni.

Árið 2023 var fyrirtækið síðan selt Grími Garðarssyni, eiganda Bestseller á Íslandi, sem rekur verslanir Vero Moda, Jack & Jones, Vila, Selected og Name It ásamt eiginkonu sinni Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur.

„Við erum spennt að opna Jóa Útherja í Smáralind og hlökkum til að bjóða bæði nýjum og tryggum viðskiptavinum að njóta þeirrar þjónustu og vöruúrvals sem hefur verið hjarta verslunarinnar síðustu 25 árin,“ segir Grímur Garðarsson, eigandi Jóa Útherja og Bestseller á Íslandi.