Hugbúnaðarfyrirtækið Justikal er nú komið á skrá yfir viðurkennda póstþjónustuaðila hjá Byggðastofnun. Justikal er þekktast fyrir að hanna stafrænt réttarkerfi sem gerir aðilum í dómsmálum kleift að meðhöndla gögn á öruggan og rekjanlegan hátt.
Fyrirtækið hefur nú skráð þjónustuna fyrir rekjanlegar gagnasendingar sem póstþjónustu hjá Byggðastofnun. Þetta var gert í kjölfar úrskurðar frá Héraðsdómi Suðurlands í dómsmáli.
„Ástæðan fyrir skráningunni er fyrst og fremst sú að gera notendum m.a. kleift að birta greiðsluáskoranir með stafrænum hætti. Þjónustan hefur nú hlotið skráningu og heimild hjá Byggðastofnun Íslands sem póstþjónusta, með öðrum orðum er nú heimilt að senda ábyrgðarbréf með þjónustunni,“ segir Margrét Einarsson, stofnandi og forstjóri Justikal.
Í tilkynningu segir að skráning Justikal hjá Byggðastofnun marki tímamót í stafrænum samskiptum innan réttarkerfisins. „Með þessari viðurkenningu geta dómstólar, lögmenn og aðrir þjónustuveitendur treyst því að afhending mikilvægra skjala með rekjanlegum hætti.“