Fyrir um tíu árum síðan lét ÁTVR vinna ítar­legt lög­fræði­legt álit á inn­lendri lög­gjöf um einka­inn­flutning og vef­verslun með á­fengi. Skjalið var út­búið sem trúnaðar­skjal og ætlað til notkunar innan­húss hjá ÁTVR á sínum tíma en stofnunin af­létti þó trúnaðinum síðar meir.

Í skjalinu, sem heitir Saman­tekt um einka­inn­flutning og net­sölu á­fengis í at­vinnu­skyni, inn­lend lög­gjöf og saman­burður við nor­rænan rétt, segir að í ís­lenskum lögum sé „raun­veru­lega hvergi að finna leið­beiningar um fram­kvæmd einka­inn­flutnings og eftir­liti er ekkert […] Ekkert bann er berum orðum við milli­göngu um út­vegun og af­hendingu á­fengis gegn þóknun.“

Í lög­fræði­á­litinu, sem er hátt í tuttugu síður, segir að réttarstaða hér­lendis er varðar net­sölu sé ó­skýr og erfitt sé að spá fyrir um hver teldist gildandi réttur ef reynt yrði á mörk lög­legrar at vinnu­starf­semi í tengslum við einka­inn­flutning á­fengis og net­sölu.

„Það er þó nærtækt að álykta af 1. ml. 1. mgr. 7. gr. laga um verslun með áfengi og tóbak, […] að milliganga gegn greiðslu um útvegun áfengis sem keypt er í smásölu af ÁTVR væri óheimil. Sambærilega leiðsögn er ekki að finna í lögum um milligöngu um útvegun eða afhendingu áfengis sem flutt er inn til einkanota og engin sérstök lagaákvæði um slíka milligöngu.“

Á þeim tíma er álitið var unnið stafaði ríkisversluninni einungis ógn af Vínhorni, vefverslun ar Frú Laugu, þar sem boðið var upp á vín sem Frú Lauga flutti inn „á grundvelli áfengisinnflutningsleyfis en „tilheyra ekki vöruúrvali verslana ÁTVR“.

Í niðurlagi álitsins er stofnunin hvött til að berjast fyrir hertri löggjöf því núverandi lög væru „gölluð“ þegar kæmi að því að girða fyrir netsölu áfengis.

Arnar Sigurðsson, forstjóri Santewines, ítrekaði nýverið kæru sína gegn ÁTVR fyrir rangar sakargiftir.

Hann segir ljóst af lestri álitsins að stofnuninni var fullljóst að einkaréttur þeirra næði ekki yfir starfsemi innlendra og erlendra netverslana.

Að hans mati var því kæra ÁTVR á hendur Sante ehf. gegn betri vitund forstöðumanna stofnunarinnar.