Kaffipressan hefur keypt rekstur handverkskaffibrennslu Kaffistofunnar en Kaffistofan hefur sérhæft sig í þróun og sölu á handverkskaffi á Íslandi allt frá stofnun fyrirtækisins í ársbyrjun 2022.
Síðustu tvö ár hafa einkennst af örum vexti og hefur félagið selt kaffi í áskrift bæði til einstaklinga og fyrirtækja. Höfuðáhersla hefur verið lögð á milliliðalausa sölu í netverslun Kaffistofunnar en félagið hefur starfrækt handverkskaffibrennslu í Hafnarfirði.
„Við erum spennt fyrir þeim nýju tækifærum sem felast í þessum samruna. Með sameiningunni getur „nýja Kaffistofan“ haldið áfram að efla sérkaffimenningu á Íslandi með því að bjóða upp á fyrsta flokks kaffi og gera hágæða kaffibaunir aðgengilegar fyrir landsmenn,“ segir Ármann Atli Eiríksson, framkvæmdastjóri og eigandi Kaffipressunnar.
Eftir kaupin á Kaffistofunni mun Kaffipressan taka upp nafn Kaffistofunnar fyrir sameinaða starfsemi. Kaffibrennslan verður flutt norður til Akureyrar um miðjan febrúar og má því búast við tímabundinni lokun sérkaffiverslunarinnar í Brekkugötu í 1–2 vikur, á meðan ný aðstaða verður sett upp.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessum breytingum og er sannfærður um að Kaffistofan á eftir að vaxa og dafna í höndum nýrra aðila. Samlegðin milli fyrirtækjanna er augljós og sameinað fyrirtæki hefur sterka stöðu til að láta að sér kveða á þessum markaði,“ segir Sverrir Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri Greindar ehf., fyrrum eigandi Kaffistofunnar.