Laxeldisfélagið Kaldvík AS hefur lokið við umfangsmikla endurfjármögnun sem felur í sér nýja lánsfjármögnun og hlutafjáraukningu. Markmið endurfjármögnunarinnar er að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og styðja við áframhaldandi vöxt og fjárfestingar.

Samhliða endurfjármögnuninni vann Kaldvík að aukningu hlutafjár félagsins sem tryggði félaginu 6,6 milljarða króna. Hlutafjáraukningin naut stuðnings frá meirihlutaeiganda félagsins, Austur Holding

„Við náðum samkomulagi við lánveitendur okkar í lok maí sem tryggði félaginu ríflega 33 milljarða króna lánsfjármögnun til 4 ára. Lánsfjármögnunin er í formi sambankaláns sem fjórir bankar koma að DNB, Nordea, Arion Banki og Landsbankinn,“ segir í tilkynningu.

Þar segir einnig að rekstrarniðurstaða fyrsta ársfjórðungs hafi verið umfram væntingar félagsins. Rekstrartekjur námu þá 48,4 milljónum evra, sem er 56% aukning frá sama tímabili í fyrra.

Rekstrarhagnaður (EBIT) þrefaldaðist í ársfjórðungnum samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs og nam 9,8 milljónir evra, samanborið við 2,4 milljónir evra árið áður. Félagið áætlar að framleiðsla 2025 nemi um 21.500 tonn og stefnir að því að sleppa 7,5 milljónum seiða á árinu 2025 til að stuðla að áframhaldandi vexti.