KAPP ehf. hefur keypt meirihluta í bandaríska félaginu Kami Tech Inc. í Seattle. Kami Tech framleiðir vélar og búnað úr ryðfrýju stáli og áli fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og matvælafyrirtæki á svæðinu og þjónustar fyrirtæki á borð við American Seafoods, Trident Seafoods og Golden Alaska Seafoods sem eru allt sameiginlegir viðskiptavinir með KAPP.

„Með kaupunum er KAPP að taka stórt skref í því að færa íslenskt hugvit og tækniþekkingu á fiskiðnaði á markað í Bandaríkjunum,“ segir í fréttatilkynningu.

„Um er að ræða stefnumarkandi kaup til frekari vaxtar KAPP á erlendum mörkuðum. Kami Tech er staðsett á Pier 90 í Seattle þar sem stór fiskiskip fjölda útgerða leggjast að bryggju til að sækja sér viðhaldsþjónustu, kaupin eru liður í aukinni sókn KAPP á vesturströnd Bandaríkjanna.“

KAPP er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á búnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi, kjúklingavinnslu og annan iðnað.

Lausnir KAPP fyrir sjávarútvegsfyrirtæki inn á þennan markað eru krapavélar og kælivélar um borð í fiskiskip og í fiskvinnslur sem og RAF sprautusöltunarvélar, kælitankar, frystar og uppþýðingarbúnaður.

Bandaríski markaðurinn 15-20 árum á eftir

Fyrirtækið segir að aðferðir í sjávarútvegi Bandaríkjanna séu ekki jafn framsæknar og á íslenska markaðnum. „Segja má að hann sé um er 15-20 árum á eftir því sem gerist á Íslandi í dag þegar kemur að gæðamálum með hráefni og kælingu á því.“

KAPP segist því með þessu stefnumarkandi skrefi vera að bjóða sjávarútvegsfyrirtækjum í Ameríku uppá nýjustu tækni í kælingu á hráefni, nálgun sem notast er við á þróuðustu mörkuðum í Evrópu.

KAPP hefur undanfarin ár selt OptimICE® krapavélar sem framleiddar eru Íslandi til félaga í sjávarútvegi á vesturströnd Bandaríkjanna, Kanada og í Alaska.

„Kaup KAPP á KAMI Tech er svar við aukinni eftirspurn markaðsins í Bandaríkjunum eftir stöðluðum kæli- og frystilausnum. KAPP er fjárhagslega sterkt og tilbúið í þessa vegferð en nýlega keypti KAPP einnig allar eignir þrotabúsins Skagans 3X, sem eykur vöruframboð samstæðunnar inn á markaðinn í N-Ameríku.“

„Með því að sameina krafta KAPP ehf með Kami Tech erum við að auka getu okkar til að þjóna breiðari hópi viðskiptavina í Norður-Ameríku með nýstárlegum, end-to-end lausnum. Bæði fyrirtækin hafa með góðum árangri, byggt upp sterk viðskiptatengsl og afhent háþróaða tækni. Saman erum við að bjóða víðtækari lausnir fyrir markaðinn, byggt á sameiginlegum gildum okkar um að bjóða framúrskarandi þjónustu og vera ávallt í fararbroddi fyrir viðskipavini okkar,” segir Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP.

„Samruninn við KAPP er spennandi tækifæri til að bjóða viðskiptavinum í Norður-Ameríku upp á aukið úrval lausna sem sannarlega skera sig úr. Sameinuð sérfræðiþekking okkar og skuldbinding viðskiptavina mun knýja áfram vöxt og gera okkur kleift að takast á við fjölbreyttari þarfir. Fólk er kjarninn í fyrirtæki okkar, og með samræmdri menningu okkar, erum við vel í stakk búin til að móta farsæla framtíð saman,” segir Tom Key, framkvæmdastjóri hjá Kami Tech Inc.