Karen Áslaug Vignisdóttir hefur verið sett aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram í frétt á vef Seðlabankans.

Karen hóf störf hjá Seðlabankanum árið 2006 sem hagfræðingur og hefur gegnt stöðu forstöðumanns greiningar og útgáfu á sviði hagfræði og peningastefnu frá árinu 2018. Á þeim tíma hefur hún einnig verið staðgengill aðalhagfræðings bankans og gegnt hlutverki ritara peningastefnunefndar.

Karen er með meistarapróf í hagfræði frá háskólanum í Árósum í Danmörku frá árinu 2005 en hún lauk grunnnámi í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003.

Karen tekur stöðu aðalhagfræðings Seðlabankans af Þórarni G. Péturssyni sem var í síðustu viku kipaður varaseðlabankastjóri peningastefnu.