Fjárfestingasjóðurinn Bain Capital hefur gert samkomulag við Icelandair Group um að kaupa 16,6% hlut í félaginu fyrir 8,09 milljarða króna. Bain skráir sig fyrir samtals 5.659 milljónum nýrra hluta í Icelandair á genginu 1,43 krónur á hlut en samkomulagið er háð samþykki hluthafafundar Icelandair og að hluthafar falli frá forgangsrétti að nýjum hlutum í félaginu.
Þá er í samkomulaginu skilyrði um að Bain Capital fái fulltrúa í stjórn félagsins. Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair, mun stíga til hliðar sem stjórnarmaður í félaginu verði viðskiptin samþykkt á hluthafafundi samkvæmt tilkynningu frá Icelandair. Úlfar hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2010 Stefnt er að því að halda fundinn 23. júlí. Hömlur verða á viðskiptum með hina nýju hluti í 180 daga. Gangi viðskiptin eftir verður Bain stærsti hluthafi Icelandair.
Í tilkynningunni segir að Bain Capital muni að auki fá áskriftarréttindi fyrir hlutum sem samsvara 25% af heildarfjölda þeirra nýju hluta sem gefnir verða út. Heimildin mun gilda í tíu daga frá og með birtingu uppgjörs félagsins fyrir annan ársfjórðung 2022. Áskriftarréttindin veita Bain heimild, en ekki skyldu, til kaupa á nýjum almennum hlutum í félaginu á sama gengi á hvern hlut að viðbættum 15% ársvöxtum.
„Hlutafjáraukningin mun styrkja fjárhagsstöðu Icelandair Group enn frekar og auka fjárhagslegt bolmagn félagsins til að nýta þau tækifæri sem munu skapast í þeirri fordæmalausu stöðu sem nú er uppi á flugmörkuðum," segir í tilkynningunni.
Stofnað af Mitt Romney
Bain Capital er alþjóðlegur fjárfestingasjóður með starfsemi í fjórum heimsálfum, hefur yfir 1.200 starfsmenn og er eignasafn hans metið á um 130 milljarða Bandaríkjadala. Félagið var stofnað árið 1984 af þremur meðeigendum stjórnendaráðgjafarfyrirtækisins Bain & Company, þar á meðal bandaríska öldungadeildarþingmanninum og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikana Mitt Romney. Hann fékk að leiða fjárfestingafélagið og gerði það að einu stærsta fjárfestingafélagi í heimi.
Romney sagði sig frá Bain í byrjun árs 2002 og seldi hlut sinn en samdi um að fá áfram hlutdeild að hagnaði frá rúmlega 20 sjóðum í stýringu hjá Bain Capital sem skilaði honum milljónir dala árlega, að því er NYT greindi frá í desember 2011.
Fyrirkomulagið á kaupunum er svipað og þegar bandaríski fjárfestingasjóðurinn PAR Capital Management keypti 11,5% hlut í Icelandair, í formi nýs hlutafjár, í apríl 2019 á rúma 5,6 milljarða króna á genginu 9,03 krónur á hlut. Sjóðurinn bætti stuttu síðar við sig rúmlega 2% hlut og varð stærsti hluthafi Icelandair. Eftir að Covid heimsfaraldurinn hófst byrjaði PAR að selja í Icelandair þegar gengi Icelandair var kokmið niður fyrir 3 krónur á hlut. Sjóðurinn tók síðan ekki þátt í hlutafjárútboðinu á síðasta ári og seldi í kjölfarið allan hlut sinn í flugfélaginu.
Icelandair lauk 23 milljarða króna hlutafjárútboði í september síðastliðnum en með hverjum hlut fylgdi 25% áskriftarréttindi á sama gengi að viðbættum 15% vöxtum næstu þrjú árin upp á 5,7 milljarða króna.
Tilkynning Icelandair kemur á sama tíma og tilvonandi samkeppnisaðilinn Play vinnur að eigin hlutafjárútboði fyrir skráningu á First North markaðinn en útboð Play hefst á morgun, sama dag og fyrsta flug félagsins fer í loftið.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:
„Það er mikið gleðiefni að bjóða Bain Capital velkomin í sterkan og fjölbreyttan hluthafahóp okkar. Við erum ánægð með að fá í hópinn leiðandi fjárfesti á heimsvísu með mikla þekkingu á fluggeiranum. Samkomulagið er auk þess mikilvæg viðurkenning á því ötula starfi sem starfsfólk Icelandair hefur unnið til að tryggja bjarta framtíð félagsins. Við hlökkum til samstarfsins og að nýta þau miklu tækifæri sem við sjáum í viðskiptalíkani Icelandair eftir heimsfaraldurinn.“
Matthew Evans, framkvæmdastjóri Bain Capital Credit:
„Við erum mjög spennt fyrir því að bæta Icelandair Group í fjölbreytt eignasafn okkar í flugtengdri starfsemi og að styðja við flugfélagið í næsta kafla 84 ára sögu þess. Þó líklegt sé að það taki ferðaþjónustu í heiminum nokkurn tíma að ná fullum styrk á ný, deilum við þeirri trú með stjórnendum Icelandair að viðskiptalíkan félagsins sé mjög samkeppnishæft til lengri tíma og að félagið hafi rekstrarsögu sem setur það í kjörstöðu til þess að nýta sér þau tækifæri sem verða til nú þegar heimsfaraldurinn er í rénun. Við erum sannfærð um að víðtæk reynsla okkar úr fluggeiranum og virðisaukandi nálgun muni styðja við vöxt Icelandair til hagsbóta fyrir alla hluthafa.“