Horn IV, framtakssjóður í stýringu Landsbréfa, og Skel fjárfestingafélag hafa gert áskriftarsamning að nýju hlutafé í Styrkás ehf., eignarhaldsfélagi Skeljungs ehf. og Kletts – sölu og þjónustu ehf. Í samningnum skuldbindur Horn sig til að skrá sig fyrir hlutafé að andvirði 3,5 milljarðar króna og verður við það eigandi að 29,54% af heildarhlutafé hins nýstofnaða Styrkáss.
Í tilkynningu Skeljar til Kauphallarinnar segir að kaupverð og fjöldi hluta í viðskiptunum byggi á því að fyrir hlutafjáraukninguna sé samanlagt virði eigna Styrkáss 8,35 milljarðar króna og heildarvirði (e. enterprise value) 11,2 milljarðar króna. Samningurinn er gerður með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
„Hlutafjáraukningin verður nýtt til að hrinda framtíðarsýn og markmiðum hlutahafa í framkvæmd, þ.e. að byggja Styrkás upp sem enn öflugri samstæðu sem þjónustar ólík svið atvinnulífsins.“
Styrkás verði skráð í Kauphöllina fyrir árslok 2027
„Samhliða áskriftarsamningi hafa aðilar undirritað hluthafasamkomulag þar sem kveðið er á um að framtíðarsýn hluthafa Styrkáss sé að félagið verði leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði. Sameiginlegt markmið hluthafa sé að byggja upp samstæðuna þar sem horft verður til ytri vaxtatækifæra á sviði orku og efnavöru, tækjum og búnaði, umhverfi, iðnaði og eignaumsýslu.
Í hluthafasamkomulagi er kveðið á um markmið aðila að skrá alla hluti í félaginu í Kauphöll á Íslandi fyrir árslok 2027. Í hluthafasamkomulagi er einnig kveðið á um að stjórn Styrkáss verði skipuð fimm aðilum og tveimur til vara. Tveir stjórnarmenn verða tilnefndir af Horni og tveir tilnefndir af Skel.
Skel hafði tilkynnti í ágúst 2022 markmið um að gera dótturfélögin Orkuna og Skeljung að skráningarhæfum félögum á þremur árum, m.a. með því að auka EBITDA-hagnað félaganna. Horft var til að skrá félögin á næstu 3-5 árum.
Í október síðastliðnum gerði Skeljungur kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Kletti – sölu og þjónustu í 3,8 milljarða króna viðskiptum. Gengið var formlega frá kaupunum í febrúar.
Hjá Skeljungi eru að jafnaði 60 starfsmenn og hjá Kletti 120. Forstjóri Skeljungs er Þórður Guðjónsson og forstjóri Kletts er Kristján Már Atlason.
„Skel hf. er umbreytingafjárfestir. Við kynntum hugmynd að þjónustufyrirtæki við atvinnulífið á grunni Skeljungs og Kletts fyrir u.þ.b. ári síðan og höfum síðan þá unnið að þróun þeirra hugmynda og viðræðna við mögulega samstarfsaðila. Við erum ákaflega ánægð og stolt að hefja samstarf með Horni og Landsbréfum sem hafa reynst farsæl í rekstri framtaksfjárfestingasjóða,“ segir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar.
„Við höfum gefið félaginu heitið Styrkás og munum halda áfram að byggja upp félag sem einbeitir sér að þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Við teljum að þar sé tækifæri vegna þess að atvinnulífið allt stendur frammi fyrir miklum áskorunum í uppbyggingu innviða og á sviði orkuskipta.“
Horn IV er 15 milljarða framtakssjóður sem er að mestu í eigu lífeyrissjóða. Sjóðurinn sem hóf göngu sína árið 2021 hefur keypt 45% hlut í móðurfélagi Airport Associates, 35% hlut í GoPro, 22% hlut í S4S og í 40% hlut í Eðalfangi. Horn IV tók einnig þátt í nýlegri hlutafjáraukningu First Water, sem hét áður Landeldi.
„Horn sér mikil tækifæri til frekari innri og ytri vaxtar fyrirtækja á þessum markaði. Framundan er uppbygging innviða og frekari atvinnuvegafjárfesting. Samstarf félaganna í gegnum Styrkás sem hefur það markmið að fjárfesta í og byggja upp fyrirtæki og efla þjónustu við atvinnulífið er spennandi vegferð. Styrkás á tvö öflug og vel rekin félög með sterka innviði og reynslumikið stjórnendateymi með skýra framtíðarsýn. Við hlökkum til samstarfsins með starfsfólki SKEL og Styrkáss á komandi árum,“ segir Hermann Már Þórisson, framkvæmdastjóri Horns IV.
Ráðgjafar Horns í ferlinu eru fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og Logos. Lögfræðilegur ráðgjafi Skeljar í ferlinu er BBA//Fjeldco.