Bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar­bæjar samþykkti í vikunni að kaupa stærstan hluta eignarinnar Ós­eyra­r­braut 2, húsnæði Kænunnar við smábáta­höfnina.

Sam­kvæmt Fjarðar­fréttum er kaup­verðið 265 milljónir króna en húsnæðið er um 324 m² og stendur á 2.363 m² leigulóð. Bærinn er að kaupa um 70% eignarhlut.

Heimildir héraðsmiðilsins herma að bærinn sé ekki einungis að greiða fyrir húsnæðið heldur er einnig tekið til­lit til þess að verið er að kaupa út starf­semi í fullum rekstri.

Sam­kvæmt fast­eigna­skrá er fast­eigna­mat eignar­hlutarins 63,2 milljónir og bruna­bóta­mat 139,25 milljónir.

Bæjar­stjórn hyggst rífa húsnæðið og rýma fyrir byggingu Tækniskólans á svæðinu en til þess að það gerist þarf að rífa fleiri eignir á svæðinu.

Odd­steinn Gísla­son, eig­andi Mat­bæjar, sagði í sam­tali við Fjarðar­fréttir að rekstri Kænunnar verði hætt við af­hendingu húsnæðisins.

Hann hafi leitað að hentugu húsnæði en ekki fundið neitt sem hentar. Segir hann rekstur Kænunnar hafa gengið gríðar­lega vel síðustu ár og hafi met­fjöldi matar­gesta komið í Kænuna á síðasta ári.

Af­hending eignarinnar er 1. desember 2028 en fram að þeim tíma hefur Mat­bær ehf., sem rekur Kænuna, fullt um­ráð yfir eigninni.