P 107 ehf., félag Jóhanns G. Jóhannssonar, eins stofnenda og eigenda Aztiq, hefur fest kaup á sjö íbúðum í nýbyggingu í Vesturbæ Reykjavíkur fyrir alls 565 milljónir króna.

P 107 ehf., félag Jóhanns G. Jóhannssonar, eins stofnenda og eigenda Aztiq, hefur fest kaup á sjö íbúðum í nýbyggingu í Vesturbæ Reykjavíkur fyrir alls 565 milljónir króna.

Alls eru íbúðirnar 452 fermetri að stærð og nemur fermetraverð þeirra því tæplega 1,3 milljónum. Íbúðirnar eru staðsettar í fjölbýlishúsi sem nú rís úti á Granda í vesturhluta borgarinnar og eru hluti af fasteignaverkefni á Héðinsreitnum sem kallað er Vesturvin.

Jóhann G. Jóhannsson.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Tvær íbúðir eru að Vesturgötu 66 en hinar fimm eru að Ánanaustum 5. Stærsta íbúðin er 108 fermetrar, næst stærsta íbúðin 82 fermetrar en hinar fimm íbúðirnar eru á bilinu 47-57 fermetrar. Stærsta íbúðin er einnig með 82 fermetra svalir. Kaupverð íbúðarinnar nam 168,8 milljónum. Næst stærsta íbúðin kostaði 94,4 milljónir en hinar íbúðirnar kostuðu á bilinu 58,8-62,7 milljónir. Samkvæmt kaupsamningi er áætlað að Jóhann fái íbúðirnar afhendar í september á næsta ári.

Eftir kaupin hefur Jóhann fest kaup á alls níu íbúðum í Vesturvin en síðasta haust sagði Viðskiptablaðið frá kaupum Jóhanns á tveimur íbúðum þar.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.