Hið nýstofnaða F5 eignarhaldsfélag hefur gengið frá kaupum á fasteignafélaginu Fornubúðum fyrir 4,8 milljarða króna.
Stærsti hluthafi F5 er Strontín ehf., sem er í endanlegri eigu Þórðar Kolbeinssonar, en félagið var með hæsta tilboðið í opnu söluferli sem hófst undir lok síðasta árs, að því er segir í tilkynningu á vef Arion banka sem var ráðgjafi F5 í kaupunum.
Helsta eign Fornubúða fasteignafélags er húsnæði að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði sem er 10.319 fermetrar að stærð. Húsnæðið er í fullri útleigu en stærsti einstaki leigutaki félagsins er Hafrannsóknarstofnun Íslands. Þá eiga Fornubúðir einnig ónýttan byggingarrétt á sömu lóð.
Fornubúðir fasteignafélag gerði samning árið 2017 um að byggja og leigja Hafrannsóknarstofnun Íslands húsnæðið undir alla starfsemi hennar. Þann 5 júní 2020 flutti Hafró starfstöð sína að Fornubúðum 5.
Samkvæmt síðasta birta ársreikningi Fornubúða frá árinu 2021 var Kaðall ehf., í eigu Hjartar Gíslasonar og Maríu Bjarnadóttur, stærsti hluthafi fasteignafélagsins með 25,9% hlut. Félagið Icelandic Ocean, sem er að stærstum hluta í eigu Guðjóns Ómars Davíðssonar, Guðmundar P. Davíðssonar og Björgólfs Guðmundssonar, átti 25,0% eignarhlut.
Salti ehf., eignarhaldsfélag Jóns Rúnars Halldórssonar, var þriðji stærsti hluthafinn með 15,5% hlut. Þá fór Hlér, félag Guðmundar Ásgeirssonar og fjölskyldu, með 12,2% hlut.
Kaupandinn Strontín, félag Þórðar Kolbeinssonar, hefur verið hluthafi í Fornubúðum í nokkur ár og átti 5,5% eignarhlut í árslok 2021.
Stærstu hluthafar Fornubúða fasteignafélags í árslok 2021
Eignarhlutur |
25,91% |
25,04% |
15,53% |
12,20% |
5,54% |
5,54% |
5,45% |
1,20% |
1,20% |
1,20% |
1,20% |