Samkvæmt tölum Hagstofunnar er áætlað að ráðstöfunartekjur heimilageirans hafi aukist um 8% á þriðja ársfjórðungi 2024 í samanburði við sama tímabil fyrra árs.
Ráðstöfunartekjur á mann numu þá tæplega 1,6 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 6,2% frá sama tímabili í fyrra.
Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 0,3% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,9% á sama tímabili.
„Heildartekjur heimilanna jukust um 8% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 6,8% frá sama ársfjórðungi á síðasta ári. Áætlað er að eignatekjur hafi aukist um 11,8% frá sama ársfjórðungi í fyrra en áætlað er að vaxtatekjur hafi aukist um 35,6% á tímabilinu,“ segir í greiningu Hagstofunnar.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust jafnframt um 14,5% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við þriðja ársfjórðung árið 2023. Hækkun lífeyristekna um 12,4% er sá liður sem vó hvað þyngst í hækkuninni.
Þá segir einnig að heildargjöld heimilanna hafi aukist um 8,1% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra.
Skattgreiðslur jukust um 6% frá sama ársfjórðungi í fyrra og er áætlað að tryggingagjöld hafi aukist um 5,1% á tímabilinu. Þá jukust eignagjöld um 5,4% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Þar af vaxtagjöld um 6,2%.