Keahótela-samstæðan tapaði 163 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 583 milljóna króna hagnað árið 2023, samkvæmt nýbirtum ársreikningi.

Rekstrartekjur hótelsamstæðunnar, sem rekur tíu hótel um landið ásamt tilheyrandi veitingarekstri, námu 7,3 milljörðum króna í fyrra og drógust saman um 4,7% milli ára.

Rekstrarafkoma Keahótela fyrir afskriftir (EBTIDA) versnaði um tæplega 950 milljónir króna milli ára og var neikvæð um 69 milljónir í fyrra.

„Rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar var krefjandi á árinu 2024. Eldsumbrot á Reykjanesskaga höfðu neikvæð áhrif á bókunarstöðu og eftirspurn. Hækkandi verðlag og styrking íslensku krónunnar settu þrýsting á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. Styttri dvalartími og lægra gistináttaverð leiddu til samdráttar í rekstrartekjum,“ segir í skýrslu stjórnar.

„Rekstrarkostnaður félagsins hækkaði á milli tímabila vegna hækkunar á launakostnaði og vísitöluhækkunar á leigugjöldum. Félagið náði að aðlaga starfsemi sína að breyttum aðstæðum með áherslu á lágmörkun kostnaðar, aukin gæði, betri þjónustu og traust viðskiptasambönd.“

Landsbankinn hætti við sölu

Eignir hótelfélagsins voru bókfærðar á 1,6 milljarða króna í árslok 2024 og eigið fé var um 554 milljónir.

Félagið Prime Hotels ehf. á 65% hlut í Keahótelum á móti Landsbankanum. Prime Hotels er samkvæmt síðasta birti ársreikningi fjárfestingarfélagsins í helmingseigu Pt. Capital, fjárfestingarsjóðs frá Alaska. Þá eiga félögin JL Properties, sem er í eigu Jonathan B. Rubini, ríkasta manns Alaska, og Silfurhvönn ehf., sem er í eigu Fannars Ólafssonar, Kristjáns M Grétarssonar, Þórðar Kolbeinssonar og Andra Gunnarssonar, hvor um sig 25% hlut í Prime Hotels.

Landsbankinn, sem er lánveitandi Keahótela, eignaðist 35% hlut í hótelkeðjunni í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins árið 2020. Landsbankinn fer með eignarhlutinn í Keahótelum í gegnum félagið Hömlur ehf.

Landsbankinn auglýsti hlut sinn í hótelkeðjunni Keahótelum til sölu í desember síðastliðnum. Söluferli Landsbankans lauk án þess að samningar hafi náðst um sölu en hlutur bankans í hótelfélaginu er áfram til sölu.