Allt er í hnút í kjaradeilu kennara við sveitarfélögin. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var harðorður á baráttufundi kennara í Háskólabíói á dögunum, þar sem hann sendi viðsemjendum sínum tóninn.
Baráttufundur kennara fór fram miðvikudaginn 6. nóvember og tveimur dögum seinna má segja að svar hafi borist frá Samband íslenskra sveitarfélaga.
Föstudaginn 8. birtist tilkynning á vef sambandsins þar sem sagði: „Enn hefur formleg kröfugerð frá KÍ ekki litið dagsins ljós en KÍ hefur sagt að málið snúist fyrst og fremst um að efna samkomulag frá 2016 þess efnis að laun og önnur kjör hjá hinu opinbera yrðu jöfnuð almenna markaðnum.“
Í tilkynningunni segir að aðilar að samkomulaginu hafi verið ríkið, sveitarfélög, BSRB, BHM og KÍ.
„Frá árinu 2016 hefur verið unnin ítarleg greiningarvinna í samræmi við samkomulagið þó ekki hafi verið komist að sameiginlegri niðurstöðu um mælingar á launamun milli markaða,“ segir í tilkynningu sambandsins.
„Sérfræðingar frá öllum bandalögunum hafa tekið þátt í þeirri vinnu, þar með talið fulltrúar KÍ. Eðli starfa opinberra starfsmanna og starfa á almennum vinnumarkaði eru um margt ólík og einnig hvernig vinnumagn starfsfólks er mælt. Þá eru önnur kjör launafólks sömuleiðis ólík milli markaða. Verðgildi annarra kjara og réttinda sem kennarar njóta umfram sérfræðinga á almennum vinnumarkaði s.s. ríkari veikindaréttur, lengra orlof, launaður tími til símenntunar, launuð námsleyfi o.fl. má jafna til 10% til 15% launaauka, sem horfa verður til við samanburð launa og kjara á milli markaða.“
Í tilkynningu sambandsins segir að umtalsverðar breytingar hafi orðið á launakjörum launafólks undanfarinn áratug.
„Þá hafa kjarabætur á opinberum markaði verið meiri en á almennum markaði og eru kennarar þar engin undantekning,“ segir ennfremur í tilkynningunni.
Þetta kemur enda skýrt fram þegar launavísitala heildarlauna frá árinu 2014 er skoðuð. Vísitalan sínir að laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um 86% á þessum tíma en laun á opinberum vinnumarkaði um 103% eins og sést á grafinu hér fyrir ofan.
Hækkun heildarlauna kennara og sérfræðinga á almennum vinnumarkaði frá 2014 til 2023
Í tilkynningu Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að í fyrra hafi verið gert áfangasamkomulag við BSRB, BHM og KÍ um skref í átt að jöfnun samhliða undirritun skammtímakjarasamninga.,
„Þá náðist fyrr á þessu ári annað áfangasamkomulag við BSRB og BHM sem er frekara skref í átt að jöfnun fyrir þær starfsstéttir þar sem skýrar vísbendingar eru um ómálefnalegan og kerfislægan launamun á milli markaða. Kennarasambandið sagði sig frá viðræðunum í janúar síðastliðnum og er því ekki hluti af öðru áfangasamkomulaginu. Það er þó þannig að KÍ stendur til boða sambærilegt skref í átt að jöfnun launa líkt og samið var um við BSRB og BHM með öðru áfangasamkomulaginu fyrr á þessu ári.“
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.