Bandaríska umferðaröryggisstofnunin hefur sett sig í samband við Tesla eftir fjölda myndbanda sem birtust á samfélagsmiðlum sem virtust sýna nýlega sjálfkeyrandi bíla fyrirtækisins brjóta umferðarlög.

Á vef BBC segir að myndböndin virtust sýna atvik þar sem þessir sjálfkeyrandi leigubílar óku glannalega með ökumann sitjandi í farþegasætinu.

Sjálfkeyrandi bílar hafa lengi verið draumur Elons Musks, forstjóra Tesla, en þeir voru fyrst prufaðir á bandarískum þjóðvegi í borginni Austin í Texas um helgina. Nokkrir sérfræðingar, áhrifavaldar og hluthafar fengu að taka þátt í kynningunni.

Musk sagði að verkefnið væri hápunktur áratugar erfiðisvinnu en myndbönd sem enduðu í dreifingu virtust sýna að bílarnir ættu í erfiðleikum með akstursaðstæður. Í einu tilviki snarhemlaði einn bíllinn þegar hann ók fram hjá sjúkrabíl. Aðrir beygðu yfir á rangar akreinar og keyrðu sömuleiðis of hratt.

Samkeppnisaðili Tesla, Waymo, er nú þegar með sjálfkeyrandi leigubíla í mörgum bandarískum borgum. Waymo notast hins vegar við ratsjár og skynjara á meðan Tesla reiðir sig meira á myndavélar í bílunum.