Keystrike, hugbúnaðarfyrirtæki á sviði netöryggis, hefur tryggt sér viðbótarfjármögnun upp á tæplega 150 milljónir króna. Fjármögnunarlotan var leidd af Grófinni viðskiptaþróun, Investco, Arcus Invest og Líru. Auk þess kom erlendur einkafjárfestir úr netöryggisheiminum að fjármögnuninni.

Að sögn Valdimars Óskarssonar, framkvæmdastjóra Keystrike, var mikill áhugi meðal erlendra fjárfestingarsjóða að koma að fjármögnuninni. Félagið mun hefja aðra fjármögnunarlotu á vormánuðum og þá verður fjárfestingarsjóðum boðin aðkoma að Keystrike, innlendum sem erlendum.

Keystrike er vaxandi félag sem starfar enn sem komið er að stærstum hluta á Íslandi en er einnig komið með starfsemi í Bandaríkjunum og Frakklandi. Félagið segir að fjármögnunin mun gera því kleift að ráðast í nýráðningar og stíga næsta skref í sölu og markaðsstarfi, sér í lagi á netöryggismarkaði Bandaríkjanna.

Sannvotta hvert innslag á lyklaborði

Keystrike segir að lausn félagsins, sem hefur verið í þróun að undanförnu, sannvotti hvert einasta innslag notanda á lyklaborðið þannig að unnt sé að staðfesta að innslátturinn komi frá þeim sem situr við tölvuna en ekki frá óprúttnum aðila sem kynni að hafa brotist inn á tölvu notandans. Þessi nálgun er notandanum ósýnileg, sannvottun innsláttar er gerð sjálfkrafa og í rauntíma, ekki einungis við auðkenningu, heldur einnig á meðan samskiptin eiga sér stað.

Fyrsta útgáfa lausnarinnar kemur út í byrjun desember og er þróunar-útgáfa þegar komin í notkun hjá fjölda fyrirtækja, að því er segir í tilkynningu Keystrike.

„Þessi fyrsta útgáfa miðast að vernda mikilvæga innviði og kerfi sem mega með engu móti stöðvast vegna tölvuinnbrota þar á meðal orkuveitur, fjármálafyrirtæki, flugstjórnunarkerfi, fjarskiptafyrirtæki sem og framleiðslu- og sölufyrirtæki. Lausnin hentar í raun lang flestum fyrirtækjum sem eru hugsanleg fórnarlömb tölvuárása,” segir Valdimar.

„Sú nýbreytni sem Keystrike hefur þróað mun auka öryggi í heimi þar sem áskoranir aukast með hverju árinu. Keystrike nálgast öryggi kerfa á nýjan hátt sem við teljum að verði nauðsynlegt viðbótaröryggi, sérstaklega fyrir kerfislega mikilvægar stofnanir og fyrirtæki s.s. ríkisstofnanir, fjármálafyrirtæki og orku- og fjarskiptafélög,” er haft eftir Halldóri Ólafi Halldórssyni, framkvæmdastjóra Grófarinnar viðskiptaþróunar.