KFC á Íslandi hagnaðist um 302 milljónir króna árið 2023 samanborið við 415 milljónir árið áður. Félagið hyggst greiða út 65 milljónir vegna síðasta rekstrarárs, að því er segir í nýbirtum ársreikningi.

Velta KFC ehf. jókst um 666 milljónir eða um 15,3% milli ára og nam 5 milljörðum króna í fyrra. Rekstrargjöld jukust um 21,8% og námu 4,7 milljörðum. Ársverkum fjölgaði úr 154 í 165 milli ára.
Rekstrarhagnaður KFC fyrir afskriftir (EBITDA) lækkaði milli ára úr 563 milljónum í 429 milljónir króna.
Það litar dálítið samanburðartölur milli ára að PHUT ehf., sem rekur veitingastaðinn Pizza Hut í Hafnarfirði, sameinaðist KFC ehf. í ársbyrjun 2023.
Eignir KFC á Íslandi námu 2,36 milljörðum króna og eigið fé var um 1,75 milljarðar í árslok 2023. Helgi Vilhjálmsson er aðaleigandi KFC ehf.
Lykiltölur / KFC ehf.
2022 |
4.346 |
563 |
415 |
2.098 |
1.640 |
154 |