KFC hefur tilkynnt áform um að skapa sjö þúsund ný störf í Bretlandi og Írlandi í ljósi aukinnar samkeppni frá samkeppnisaðilum eins og Wingstop. Fyrirtækið mun fjárfesta um 1,5 milljarði punda á næstu fimm árum.

Á vef BBC segir að breskir og írskir neytendur eyði milljörðum punda í steiktan kjúkling á skyndibitastöðum á hverju ári.

KFC hyggst þá einblína á að opna nýja veitingastaði á lykilsvæðum eins og Írlandi og norðvesturhluta Englands en þar opnaði fyrsti KFC-staðurinn í bænum Preston fyrir 60 árum síðan.

Skyndibitakeðjan er nú þegar með fleiri en þúsund veitingastaði um Bretland og Írland og er meirihluti þeirra rekinn af leyfishöfum. KFC mun þá fjárfesta 500 milljónum punda í 500 nýjum stöðum ásamt því að endurgera núverandi veitingastaði.

KFC er enn stærsta kjúklingakeðja Bretlands en á undanförnum árum hafa minni samkeppnisaðilar haldið áfram að vaxa. Bandaríska keðjan Wingstop er til að mynda komin með 57 staðsetningar í Bretlandi og hyggst opna 20 til viðbótar.

Á sama tíma rekur skyndibitakeðjan Popeys UK 65 veitingastaði í Bretlandi og á Írlandi eftir töluverða stækkun í fyrra þegar fyrirtækið opnaði 33 nýja veitingastaði.