Kínversk yfirvöld hafa ákveðið að aflétta banni á innflutningi sjávarafurða frá flestum héruðum Japans, tveimur árum eftir að bannið var sett á vegna mengunaráhyggna frá kjarnorkuverinu í Fukushima.
Á vef BBC segir að Kínverjar muni halda áfram að flytja inn sjávarafurðir frá Japan fyrir utan 10 af 47 héruðum, þar á meðal Tókýó og Fukushima.
Kínversk tollayfirvöld sögðu í gær að sýni sem tekin voru við langtímaeftirlit höfðu ekki sýnt fram á sérstök frávik en áhyggjurnar eiga sér rætur að rekja til ákvörðunar japanskra stjórnvalda árið 2023 um að losa hreinsað skólp frá kjarnorkuverinu í hafið.
Aðgerðin hefur verið studd af Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni en sumir vísindamenn segja að ekki sé hægt að segja til um hver áhrifin verði á sjávarlíf. Kínverjar gagnrýndu meðal annars ákvörðunina og bönnuðu um leið sjávarafurðir frá landinu.