Nýtt met var slegið í vikunni þegar rúmlega 130 cm Labubu-dúkka seldist á uppboði í Kína fyrir 1,08 milljónir júana, eða 18,6 milljónir króna. Samkvæmt kínverskum miðlum er dúkkan nú dýrasta leikfang sinnar tegundar í heiminum.
Labubu-dúkkur eru sérkennilegar skrímslafígúrur sem voru hannaðar fyrir áratugi síðan af listamanninum Kasing Lung frá Hong Kong.
Síðan þá hafa dúkkurnar notið mikilla vinsælda og birst á samfélagsmiðlum frægra einstaklinga á borð við Rihanna og David Beckham. Dúkkurnar eru seldar í gegnum kínverska leikfangafyrirtækið Pop Mart og kosta vanalega um 50 júan, eða um 870 krónur.
Uppboðið, sem var haldið í alþjóðlega uppboðshúsinu Yongle í Peking, var eingöngu tileinkað Labubu og seldust 48 hlutir til rúmlega 200 gesta. Uppboðshúsið segist hafa þénað samtals 3,37 milljónum júana, eða 58 milljónum króna.
Pop Mart selur gjarnan dúkkurnar í svokölluðum blindum kössum þar sem viðskiptavinir vita ekki hönnun leikfangsins fyrr en búið er að opna umbúðirnar.
Vinsældir Labubu-dúkkunnar hafa stuðlað að velgengni Pop Mart en tekjur fyrirtækisins tvöfölduðust árið 2024 og námu 206 milljörðum íslenskra króna. Pop Mart hefur einnig fært út kvíarnar og opnaði nýjar verslanir í fimm löndum á síðasta ári, þar á meðal á Spáni og Ítalíu.