Kínverska ríkisstjórnin hefur fyrirskipað fyrirtækjum sem starfa í framleiðslu sjaldgæfra málma að afhenda stjórnvöldum lista yfir þá starfsmenn sem búa yfir tæknilegri þekkingu í iðnaðinum til að tryggja að þau afhjúpi ekki viðskiptaleyndarmál til annarra ríkja.
Á vef WSJ segir að skipunin bendi til vaxandi áhyggna kínverskra stjórnvalda í þeim málum en jarðmálmarnir, sem hafa verið í brennidepli í viðskiptastríði milli Kína og Bandaríkjanna, eru meðal annars notaðir í bíla, rafeindabúnað og vopn.
Kínverska viðskiptaráðuneytið hefur undanfarnar vikur beðið fyrirtæki innan iðnaðarins að afhenda lista með þeim starfsmönnum sem starfa í Kína ásamt upplýsingum um sérþekkingu, menntun, rannsóknarbakgrunn og persónuupplýsingar.
Samkvæmt heimildum WSJ hafa sumir kínverskir sérfræðingar verið beðnir um að skila inn vegabréfum sínum til fyrirtækja sinna eða sveitarfélaga til að tryggja að þeir fari ekki í óheimilaðar ferðir. Kínverjar krefja nú þegar ríkisstarfsmenn eða starfsmenn ríkisfyrirtækja að sækja um sérstakt leyfi til að fá að ferðast til útlanda.
Í september í fyrra tilkynnti kínverska öryggisráðuneytið meðal annars að kínverskir ríkisborgarar gætu verið dæmdir í 11 ára fangelsi fyrir það að selja leyndarmál sem tengjast jarðefnabirgðum Kína til erlendra hagsmunaaðila.
Kínverjar búa yfir stærsta forða sjaldgæfra málma í heiminum og framleiða rúmlega 90% af öllum þeim málmum, eins og gallín og germaníum. Samhliða stigmagnandi viðskiptastríði hafa Kínverjar jafnframt takmarkað útflutning þessara málma og þar með valdið áhyggjum hjá vestrænum bíla- og raftækjafyrirtækjum.
Undanfarna áratugi hafa Kínverjar framleitt þessa málma á það ódýru verði að það var nánast ómögulegt fyrir önnur alþjóðleg námufyrirtæki að keppa við Kína. Takmarkanir á útflutningi hafa hins vegar blásið nýju lífi í þennan iðnað í löndum eins og Bandaríkjunum og Frakklandi.
Ein helsta hindrunin er þó skortur á sérfræðiþekkingu utan Kína en vinnsla sjaldgæfra málma felur í sér nákvæma aðferð þar sem hráefni málmanna eru aðskilin og síðan blönduð saman við önnur frumefni sem hafa svipaða efnafræðilega eiginleika.