Aukið líf hefur færst í sérbýlamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hafa næstum tvöfalt fleiri íbúðir í sérbýli hafa selst á verðbilinu 150-200 milljónir króna samanborið við sömu mánuði í fyrra eða 91 í ár en voru 46 í fyrra.
Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS. Þar segir að umsvif hafi aukist á þessari hlið fasteignamarkaðarins samhliða íbúðakaupum Grindvíkinga í fyrra.
Alls gengu 437 íbúðir í sérbýli á verðbilinu 100-150 milljónir króna kaupum og sölum á sjö mánaða tímabilinu frá mars til og með september, en yfir sömu mánuði ársins 2023 seldust þar 277 íbúðir í sérbýli á umræddu verðbili.

Aldrei jafn lítið byggt af sérbýlishúsum
Í mánaðarskýrslunni er einnig bent á að aldrei hafi verið byggt jafn lítið af sérbýliseignum og um þessar mundir. Einungis 5% af íbúðum á höfuðborgarsvæðinu sem komu inn á markaðinn á síðasta ári voru í sérbýlum.
Af mælaborði íbúða í byggingu megi sjá að innan við 10% allra íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu eru íbúðir í sérbýlum eða 301 af 3.721.
Hlutfall sérbýlishúsa sem eru verðlögð yfir 150 milljónir króna er um 45% sérbýlishúsa eru verðlögð yfir 150 milljónir.
