Langtímakjarasamningar hafa verið undirritaðir milli flugfélagsins Play og Íslenska flugstéttafélagsins (ÍFF) vegna flugmanna og flugliða sem félagsmenn ÍFF hafa samþykkt með atkvæðagreiðslu.

Samtök atvinnulífsins fóru með samningsumboð fyrir hönd flugfélagsins Play og byggja samningarnir á ramma stöðugleikasamningsins sem undirritaður var í mars 2024.

„Það er mikið fagnaðarefni að samningar til lengri tíma hafi náðst við ÍFF. Þessir samningar veita félagsmönnum kjarabætur en gera á sama tíma rekstur Play fyrirsjáanlegri. Það stefnir í mikið ferðasumar og við hjá Play munum kappkosta við að veita farþegum okkar gæða þjónustu og frábært úrval áfangastaða á lægra verði,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.