þjóðhagsspá Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verðbólga fari ekki niður í 2,5% markmið Seðlabankans á spátímanum sem nær út árið 2027. Bankinn spáir hins vegar að verðbólgan nái inn fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins í mars næstkomandi.

„Um mitt ár gerum við ráð fyrir að verðbólga verði komin mjög nálægt markmiði en til þess að spá okkar gangi eftir þarf gengi krónu að vera nokkuð stöðugt og launaskrið takmarkað.“

Þjóðhagsspáin gerir ráð fyrir að verðbólga verði að jafnaði 3,6% á þessu ári. Bankinn segir að forsendur um stöðugra verðlag erlendis, takmarkað launaskrið og stöðugt gengi krónu stuðli einna helst að þeirri hjöðnun verðbólgunnar sem hann spáir. Hann spáir að verðbólga verði að jafnaði 3,0% árið 2026 og 3,2% árið 2027.

„Stærsti óvissuþáttur til skemmri tíma varðar kjarasamninga fyrir þann hluta vinnumarkaðar sem enn á eftir að skrifa undir. Þar að auki má nefna almenna óvissu sem tengist stjórnarskiptum hér innanlands jafnt sem erlendis.“

Mynd tekin úr þjóðhagsspá Íslandsbanka.

Merki um minni spennu á vinnumarkaði

Bankinn segir merki um minnkandi spennu á vinnumarkaði auk þess að langtímakjarasamningar við stóran hluta hans hafi dregið úr launaskriði. Eftir mikla spennu undanfarin tvö ár hafi atvinnuleysi tekið að aukast á ný á síðasta ári.

Atvinnuleysi jókst um 0,3% á milli ára og var að meðaltali 3,5% árið 2024. Íslandsbanki spáir því að atvinnuleysi verði 3,8% árið 2025 og aukist því um tæplega 0,3 prósentustig. Aftur á móti er gert ráð fyrir að atvinnuleysi minnki aðeins í kjölfarið samhliða vaxandi meðbyr í hagkerfinu og verði 3,5% árið 2027.

Þá bendi nýlegar viðhorfskannanir einnig til hægari vinnumarkaðar á næstunni. Í könnun nýjustu könnun Gallup sögðust 23% fyrirtækjastjórnenda þeirri spurningu játandi að skortur sé á starfsfólki í þeirra fyrirtæki. Íslandsbanki bendir á að það hlutfall hafi ekki mælst lægra frá miðju ári 2021.

„Við gerum samt sem áður ráð fyrir allnokkri kaupmáttaraukningu á spátímanum. Við spáum því einnig að laun hækki um 5,1% á þessu ári, 4,7% á næsta ári og 4,4% árið 2027. Gangi spá okkar eftir mun kaupmáttur launa vaxa um 1,4% á þessu ári, 1,7% á því næsta og 1,2% árið 2027.“

Hagkerfið hafi skroppið saman um 0,5% í fyrra

Greining Íslandsbanka áætlar að VLF hafi skroppið saman um 0,5% að raungildi árið 2024. Á þessu ári telur bankinn að hagvöxtur mælist 2,2% en vaxandi neysla, sér í lagi einkaneysla, eigi drýgstan þátt í þeim vexti.

„Þar koma til örari kaupmáttarvöxtur, áframhaldandi fólksfjölgun og ráðstöfun á hluta af uppsöfnuðum sparnaði.“

Þá spáir Íslandsbanki að hagvöxtur verði 2,5% árið 2026 og 2,6% árið 2027.