Verðbólga í Bandaríkjunum jókst í maímánuði og mældist 2,4% á ársgrundvelli, samkvæmt nýjustu gögnum.
Tölurnar eru í samræmi við væntingar hagfræðinga sem Wall Street Journal hafði rætt við. Verðhækkanir mældust áfram hóflegar þrátt fyrir viðvarandi óvissu vegna tollastefnu forsetans Trump.
Þegar sveiflukenndir vöruliðir eins og matvæli og orkukostnaður eru undanskildir, mældist svokölluð kjarnaverðbólga 2,8%.
Sú tala er örlítið undir væntingum markaðsaðila, sem höfðu gert ráð fyrir 2,9% hækkun á ársgrundvelli. Hagfræðingar fylgjast sérstaklega með kjarnaverðbólgunni til að meta undirliggjandi verðþrýsting í hagkerfinu.
Neytendur svartsýnir
Þótt verðbólgan virðist hafa náð einhvers konar jafnvægi í maí eru blikur á lofti vegna mögulegra hærri tolla og áhrifa af eldri ákvörðunum.
Bandarísk fyrirtæki hafa hingað til getað seinkað verðhækkunum með því að nýta birgðir sem safnað var í upphafi árs en nú óttast hagfræðingar að áhrifin af hærri tollum muni koma skýrar fram síðar á árinu þegar birgðir þverra.
Sjónarmið neytenda um verðbólgu eru mismunandi eftir mælingum.
Í könnun Háskólans í Michigan kom fram að neytendur gerðu ráð fyrir að verðlag hækki um 6,6% á næstu 12 mánuðum, sem er hæsta tala síðan 1981 og hærri en í apríl. Þessi svartsýni birtist einnig í neysluvísitölu skólans, sem hefur verið við sögulegt lágmark eftir fjögurra mánaða samfellda lækkun.
Á hinn bóginn benda nýjustu mælingar Seðlabankans New York til þess að væntingar almennings um verðbólgu til skemmri tíma hafi dalað, líklega í kjölfar þess að Trump-stjórnin dró til baka sum af hæstu tollum sem settir voru í apríl.
Óvissa um framtíðarstefnu
Tollastefna Trump forseta heldur áfram að valda sveiflum í væntingum. Nýlega lýsti hann yfir 50% tolli á vörur frá Evrópusambandinu en frestaði innleiðingu fram í júlí. Þar að auki undirritaði hann í byrjun mánaðarins forsetatilskipun sem tvöfaldaði tolla á innflutt stál, að eigin sögn til að styrkja innlendan iðnað og vernda bandaríska starfsmenn.
Þrátt fyrir að viðskiptadómstóll í Bandaríkjunum hafi nýlega úrskurðað að meirihluti nýrra tolla Trumps væri ólögmætur hefur áfrýjunardómstóll nú stöðvað þann úrskurð tímabundið, sem eykur óvissu um framhaldið.
OECD spáir minni hagvexti og meiri verðbólgu
Efnahags- og framfarastofnunin OECD hefur lækkað hagvaxtarspá sína fyrir Bandaríkin úr 2,2% niður í 1,6% fyrir árið 2025, meðal annars vegna áhrifanna af tollastefnu forsetans, minni innflytjendastraums og aukinnar stefnuóvissu.
Stofnunin spáir einnig að verðbólga samkvæmt mælikvarða Seðlabanka Bandaríkjanna muni ná 3,9% fyrir lok árs. Sú þróun gæti haft áhrif á ákvarðanir um stýrivexti. Á meðan markaðir og forsetinn hafa kallað eftir vaxtalækkunum telur OECD að slíkar aðgerðir kunni að bíða fram á næsta ár.