Íslenska fyr­ir­tækið In­ternati­onal Car­bon Reg­is­try (ICR), sem rek­ur alþjóðlegt vott­un­ar­kerfi og kol­efn­is­skrá, hefur skrifað undir samstarfssamning við Klappir. Samstarfið byggir á því að einfalda aðgengi að hágæða kolefniseiningum frá verkefnum um allan heim.

Hugbúnaðarlausnir Klappa gera fyrirtækjum kleift að uppfylla kröfur um upplýsingagjöf í sjálfbærni með skilvirkum og einföldum hætti.

„Samstarfið við Klappir gerir okkur kleift að styrkja enn frekar stefnu okkar að bjóða upp á hágæða kolefniseiningar og gera þær aðgengilegar fyrirtækjum sem vilja taka ábyrgð á losun sinni og styðja við verkefni sem eru að takast á við loftslagsvána. Saman munum við styrkja fyrirtæki til að taka upplýstar og mikilvægar ákvarðanir um sjálfbærni þeirra,“ segir Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri ICR.

Í tilkynningu segir að samstarfið sé svar við aukinni eftirspurn eftir áhrifamiklum mótvægisaðgerðum í formi kolefniseininga.

„Við hjá Klöppum teljum að tæknin sé lykillinn að mikilvægum umhverfisaðgerðum. Samstarfið við ICR gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum öflugt tæki til að stjórna eigin loftlagsáhrifum og stýra verkefnum sem munu styrkja sjálfbæra framtíð. Þetta er meira en bara samstarf, þetta snýst um að byggja upp úthald og sína gott fordæmi,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.