Alfa Framtak hefur lokið fjármögnun á 15 milljarða króna framtakssjóði sem ber heitið Umbreyting II og mun fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum. Talsverð umframeftirspurn var frá fjárfestum, að því er kemur fram í fréttatilkynningu, en hluthafar nýja sjóðsins eru lífeyrissjóðir, tryggingafélög og aðrir fjársterkir einstaklingar. Sjóðurinn mun fjárfesta í fimm til níu fyrirtækjum og verður eignarhaldstíminn í hverju félagi að meðaltali fjögur til sex ár.
Alfa Framtak hefur frá árinu 2018 rekið sjö milljarða króna framtakssjóðinn Umbreytingu slhf., sem er nú full fjárfestur. „Nýr sjóður hefur sambærilegar áherslur og hefur því sveigjanleika til þess að fjárfesta í fjölbreyttum fyrirtækjum, styðja við vöxt og að leiða umbreytingar í íslensku atvinnulífi,“ segir í tilkynningunni.
„Það er mikil viðurkenning fyrir okkar störf að jafn stór hópur íslenskra fagfjárfesta skuli sýna okkur þetta traust. Stór hluti þessara fjárfesta hafa verið með okkur frá árinu 2018, þegar við hleyptum fyrsta framtakssjóðnum okkar af stokknum og fleiri hafa nú bæst í hópinn,“ segir Gunnar Páll Tryggvason , framkvæmdastjóri Alfa Framtaks.
Stjórn nýja sjóðsins skipa Friðrik Jóhannsson, Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, Finnur R. Stefánsson, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Jón Sigurðsson (fráfarandi forstjóri Össurar). Varastjórn sjóðsins er skipuð Friðriki Stein Kristjánssyni og Marinellu Haraldsdóttur.
Hjá Alfa Framtak starfa nú auk Gunnar Páls, fjórir starfsmenn. Árni Jón Pálsson, er einn stofnenda félagsins, en hann gegnir stöðu fjárfestingastjóra. Markús Hörður Árnason, gekk til liðs við félagið sem meðeigandi og fjárfestingastjóri haustið 2021, eftir um 13 ár í fjárfestingum hjá TM. Rakel Guðmundsdóttir, gegnir stöðu eignarhaldsstjóra, en hún hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2018. Hörður Guðmundsson, sérfræðingur, gekk til liðs við Alfa Framtak árið 2020.
Sjá einnig: Grafa og grjót að kaupa Steingarð
Sjóðir Alfa Framtaks hafa stutt við sex fyrirtæki; Borgarplast, Málmsteypu Þorgríms Jónssonar, Nox Health, Greiðslumiðlun Íslands, Gröfu og Grjót og Travel Connect.