Rekstrartekjur Klíníkurinnar í Ármúla, námu tæpum tveimur milljörðum króna á síðasta ári, sem er 63% aukning frá árinu 2020 þegar tekjurnar námu 1.2 milljarði. Klíníkin hagnaðist um 63 milljónir króna í fyrra samanborið við 1,5 milljóna króna tap árið á undan.
Í skýrslu stjórnar segir að í ágústmánuði í fyrra hafi borist beiðni frá Landspítalanum um að Klíníkin aðstoðaði spítalann vegna alvarlegs ástands sem þar var komið upp vegna COVID-19 faraldursins.
„Til að verða við þessari beiðni dró félagið verulega úr starfsemi í tvær vikur í ágústmánuði og fóru svæfingalæknar og hjúkrunarfræðingar frá félaginu til starfa á spítalanum. Einnig tók félagið að sér á haustmánuðum fjölda skurðaðgerða í samvinnu Landspítalann.
Í janúarbyrjun 2022 var aftur óskað eftir aðstoð frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi vegna COVID-19 faraldursins og var þá starfsemi skurðstofa stöðvuð í þrjár vikur og fóru allir svæfingalæknar og hjúkrunarfræðingar félagsins til starfa á Landspítalanum. Að þessu sögðu er það mat stjórnar að áhrif COVID-19 faraldursins á rekstur félagsins séu nú að mestu gengin yfir.“
Stærsti hluthafi Klíníkurinnar er Pegá ehf. sem á tæplega 15% hlut en eigandi félagsins er Aðalsteinn Arnarson læknir. Ment2Move ehf., sem er í eigu Hjálmars Þorsteinssonar og Bóel Hjarta á ríflega 12% hlut. Félagið EKL ehf. á svo tæplega 12% hlut í Klíníkinni. Ásdís Halla Bragadóttir á 39% í EKL í gegnum félögin Eva Constortium og Gekka ehf. Guðbjörg M. Matthíasdóttir á 28 hlut í EKL í gegnum Kristinn ehf.
Lykiltölur / Klíníkin
2020 | |||||||
1.222 | |||||||
286 | |||||||
-9 | |||||||
-1,5 |
Fjallað var um málið í Viðskiptablaðinu, sem kom út 17. nóvember.