Forkeppni Creative Business Cup var haldin í fyrsta skipti á Íslandi fyrir rúmri viku síðan og bar sprotafyrirtækið Knittable sigur úr býtum. Forkeppnin var haldin á vegum KLAK - Icelandic Startups og Íslandsstofu.

Nanna Einarsdóttir, stofnandi sprotans mun keppa um heimsmeistaratitilinn í lokakeppni Creative Business Cup 2024 í Kaupmannahöfn í júní næstkomandi.

Creative Business Cup á sér 12 ára sögu þar sem skapandi sprotafyrirtæki frá yfir 80 löndum keppa um titilinn fyrir bestu hugmyndina. Keppnin laðar að sér skapandi sprotastjörnur frá öllum hornum heimsins, og fer fram í Kaupmannahöfn ár hvert.

Forkeppnir hafa nú þegar verið haldnar víða um heim en á síðasta ári var það sprotafyrirtækið NEBESYS frá Tékklandi sem hlaut vinninginn sem besta hugmyndin.

Forkeppni Creative Business Cup 2024.
© Eygló Gísladóttir (Eygló Gísladóttir)

Íslensku dómararnir sem dæmdu í forkeppninni voru Haukur Guðjónsson, stofnandi Sundra en hann keppti fyrir hönd Íslands í Creative Business Cup 2023 og lenti í einu af tíu efstu sætunum, Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Sigríður Heimisdóttir, hönnuður hjá Hugviti og hönnun.

Sprotafyrirtækið Knittable tók þátt í viðskiptahraðlinum Startup SuperNova árið 2023 en KLAK - Icelandic Startups rekur þann hraðal í samstarfi við fjarskiptafyrirtækið NOVA. Knittable-teymið skipa þau Nanna Einarsdóttir, stofnandi, Renata Blöndal, Leonie Karn og Magnús Elvar Jónsson.