Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að kolefnisspor fyrirtækisins hafi minnkað um 54% á milli ára en losun að frádreginni kolefnisbindingu var um 2.800 tonn CO2-ígilda á fyrri árshelmingi þessa árs.

Kolefnisspor á orkueiningu hafi þá verið 0,38 gCO2íg/kWst og dróst saman um 55% frá fyrra ári. Landsvirkjun segir að það hafi aldrei verið minna síðan byrjað var að færa loftslagsbókhald hjá fyrirtækinu.

Þetta kemur meðal annars fram í hálfsársuppgjöri loftslagsbókhalds Landsvirkjunar en heildarlosun frá starfsemi fyrirtækisins á tímabilinu nam um 20.700 tonnum CO2-ígilda en það er 12% minna en á sama tímabili árið áður. Samdráttinn má að mestu rekja til mikils samdráttar í losun frá jarðvarma (-23%), sem helgast að mestu leyti af minni orkuvinnslu frá Kröflustöð.

„Losun vegna bruna jarðefnaeldsneytis minnkaði um 18% á milli ára. Við vinnum markvisst að því að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir hreinorku á bifreiðum og tækjum í okkar eigu og stefnum á að hætta að kaupa jarðefnaeldsneyti árið 2030.“