Greiðslukortavelta Íslendinga var 6,8% meiri í nýliðnum maí miðað við sama tíma í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Þetta kemur fram í greiningu Landsbankans en þar segir að kortavelta innanlands hafi aukist um 3,3% að raunvirði milli ára.
Veltan erlendis hafi hins vegar aukist um 20,9% á föstu gengi en sú aukning er sögð ríma við stórfellda fjölgun utanlandsferða á þessu ári.
„Það sem af er ári hafa utanlandsferðir Íslendinga verið 29% fleiri en á sama tíma í fyrra. Í maí síðastliðnum voru utanlandsferðir Íslendinga um 25% fleiri en í maí á síðasta ári og ferðir í maímánuði hafa aldrei verið fleiri,“ segir í greiningu.
Landsbankinn segir þó að huga þurfi að því að kortavelta Íslendinga erlendis komi bæði frá kortum sem eru notuð í utanlandsferðum og einnig í erlendri netverslun.
Heildarkortavelta hefur sömuleiðis aukist á milli ára í hverjum einasta mánuði frá því í október 2023. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs jókst kortavelta um 5,5% frá sama tímabili í fyrra og jókst einkaneysla um 2,3% á fyrsta fjórðungi.