Heildar greiðslukortavelta hérlendis í janúar nam rúmum 93,7 milljörðum króna og jókst um 30,3% á milli ára miðað við breytilegt verðlag, að því er kemur fram í mánaðarlegri samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV).

Heildar greiðslukortavelta Íslendinga hérlendis nam rúmum 77 milljörðum króna í janúar og jókst um tæp 19,3% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.

Innlend kortavelta í verslun nam tæpum 41 milljarði, jókst um tæp 8,8% á milli ára, en innlend kortavelta í þjónustu nam rúmum 36 milljörðum, jókst um 34% á milli ára.

Heildar velta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 22,9 milljörðum í desember. Veltan jókst um tæpa 5 milljarða frá fyrra ári.

Áfram eykst velta erlendra ferðamanna

Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis nam rúmum 16,7 milljörðum króna í janúar. Veltan jókst um rúm 4% á milli mánaða og um 126,9% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.

Hlutfall erlendrar kortaveltu af heildarkortaveltu á Íslandi var rúm 17,8 % í janúar en sama hlutfall var rúm 20,3% í janúar 2019.

Ferðamenn frá Bandaríkjunum voru ábyrgir fyrir rúmlega 30% af allri erlendri kortaveltu hérlendis í janúar. Bretar komu næstir með 18,9% og svo Þjóðverjar með 5,4%.