Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra og oddviti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, og Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuhússins, ræða um heilbrigðismál í nýjasta samtalsþætti Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) fyrir kosningar.
Í þættinum er meðal annars rætt um hlutverk einkafyrirtækja við veitingu heilbrigðisþjónustu, biðlista í heilbrigðiskerfinu, rafræna heilbrigðisþjónustu á borð við fjarlækningar, og annmarka við innkaup hins opinbera á heilbrigðisþjónustu.
Þetta er sjötti og síðasti samtalsþáttur SVÞ fyrir kosningarnar. Nálgast má fyrri þætti hér að neðan.