Heildarkostnaður framkvæmda við varnarnargarða í nágrenni Grindavíkur er talinn verða í kringum 7 milljarðar króna með öllum viðbótum. Til samanburðar var kostnaðurinn upphaflega metinn á um 6,0-6,5 milljarðar króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins en áætlunin byggir á upplýsiungum frá embætti ríkislögreglustjóra.
Inni í heildarkostnaðinum eru hækkanir og styrkingar á varnargörðunum, innri garður í námunda við orkuverið í Svartsengi og ýmiss konar aðlögun vegna vegtenginga og umhverfissjónarmiða við lok framkvæmda, að því er segir í tilkynningunni