KPMG og Advise hafa skrifað undir samstarfssamning sem gerir KPMG kleift að veita viðskiptavinum sínum þjónustu með Advise Business Monitor-hugbúnaðarlausninni.

Advise, sem er íslensk hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar, veitir litlum og meðalstórum fyrirtækjum rauntímaupplýsingar um rekstur sinn, auðveldar samskipti hagsmunaaðila og stuðlar að gagnadrifnum ákvörðunum.

Lausnin innifelur meðal annars lifandi rekstrargreiningar og mælaborð auk öflugrar aðgangsstýringar.

„Samstarf okkar við KPMG byggir á sameiginlegu markmiði okkar að aðstoða stjórnendur og aðra hagaðila fyrirtækja við að ná árangri í sínum rekstri með ákvörðunum sem byggja á greinargóðum fjárhagsupplýsingum. Ég er spenntur að ganga til samstarfsins við KPMG,“ segir Mikael Arnarson, framkvæmdastjóri Advise.

Í tilkynningu segir að hugbúnaðarlausnir Advise séu mikilvæg viðbót í þjónustuframboð KPMG þar sem félagið sinni margvíslegri þjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þá sé einnig stefnt að því að tengja fleiri bókhaldskerfi við lausnina þegar fram í sækir.

„Með því að sameina víðtæka þekkingu sérfræðinga okkar hjá KPMG við öflug rekstrarmælaborð Advise getum við veitt viðskiptavinum okkar enn verðmætari þjónustu og ráðgjöf. Þannig geta þau fengið betri innsýn inn í rekstur síns félags og gripið þau tækifæri sem til staðar eru á hverjum tíma,“ segir Birna M. Rannversdóttir, meðeigandi hjá KPMG.