Krónan hefur ákveðið að breyta Kr.- verslunum sínum á Þorlákshöfn og í Vík í Mýrdal í Krónuverslanir. Þetta felur í sér verðbreytingar á ákveðnum vöruflokkum frá og með 15. desember. Á nýju ári mun merkingum í verslun einnig verða breytt ásamt því að sjálfsafgreiðslulausnin Skannað og skundað verður innleidd.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir það mikilvægt fyrir Krónuna að geta rekið sínar verslanir undir einu vörumerki.

„Okkar loforð er að koma réttu vöruúrvali á sem ódýrastan hátt til viðskiptavina. Við viljum einnig að viðskiptavinir okkar upplifi Krónuandann óháð staðsetningu. Við erum spennt að sjá hvernig verður tekið í Skannað og skundað sem er nýja sjálfsafgreiðslulausnin okkar. Með henni er hægt að spara heilmikinn tíma við innkaupin og einfalda lífið á ýmsan máta,“ segir Guðrún.

Í fréttatilkynningu er breytingin sögð liður í vegferð Krónunnar að styrkja sig í sessi utan höfuðborgarsvæðisins og að koma réttu vöruúrvali í hendur viðskiptavina.

„Við reiknum með að heimamenn sæki meira til okkar en birgi sig ekki upp í borginni eða nágrannabæjum, sem er ekki aðeins hagkvæmt fyrir viðskiptavini heldur einnig umhverfisvænna. Við búumst því við söluaukningu í versluninni og hlökkum til að sjá breytinguna ganga í gegn,“ segir Ingólfur Árnason, verslunarstjóri í Þorlákshöfn.

Verslun Krónunnar í Vík.