Kringlan hlaut á dögunum tvenn evrópsk verðlaun fyrir mathöllina Kúmen sem opnaði í Kringlunni í nóvember 2022.

Verðlaunin, Transform Awards, voru veitt við hátíðlega athöfn í London. Kringlan hlaut, ásamt mörkunar- og upplifunarstofunni M Worldwide, silfurverðlaun í flokkunum Best Brand Development Project og Best Brand Experience og bar þar sigurorð af stórum alþjóðlegum vörumerkjum á borð við Vodafone og Pepsi.

„Við erum afar stolt að hafa unnið til þessara stóru alþjóðlegu verðlauna. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Kringluna og Kúmen,“ segir Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar.

Best Brand Development Project verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi mörkun og umbreytingu húsnæðis í takti við breytta stefnu, gildi eða staðfærslu á markaði. Best Brand Experience-verðlaunin eru veitt fyrir frábæra upplifun gesta á staðnum.

Breytingarnar voru unnar í náinni samvinnu Kringlunnar, Reita fasteignafélags, THG arkitekta og M Worldwide.

„Við hjá Reitum erum mjög ánægð með þessi verðlaun. Með þessum verðlaunum er staðfest enn frekar að teymi Reita er á heimsmælikvarða í umbreytingu húsnæðis og í því að skapa frábæra upplifun gesta,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.