Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar sagði fyrir tveimur árum að launahækkanir þingmanna og ráðherra gengju ekki upp.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að launahækkun helstu ráðamanna þjóðarinnar, sem koma á til framkvæmdar 1. júlí, gangi ekki upp. Það sé ríkisstjórnarinnar að beita sér gegn henni.

„Það er mín skoðun að þetta gangi ekki upp. Þetta eru kolröng skilaboð til vinnumarkaðarins.“

Einnig sagði hún.

„Það er víða búið að semja, bæði á opinbera og almenna vinnumarkaðnum um ákveðið þak til að koma í veg fyrir að launin hækki alveg upp á við og ákveðinn vítahringur skapist.

Ef normið er orðið það að það er verið að setja þak á efstu laun og við fylgjum ekki því normi, þá gengur það ekki upp að mínu mati.“

Kristrún lét þessi orð falla í viðtali við Ríkisútvarpið í lok maí 2023.

Í dag sagði Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra að rík­is­stjórn­in þurfi að taka ákvörðun til lengri tíma um hvaða mæli­kv­arði verði notaður til að reikna hækk­un á laun­um æðstu ráðamanna.

Hún seg­ist sýna því full­an skiln­ing að launa­hækk­un æðstu ráðamanna upp á 5,6 pró­sent veki gremju. Sér hugn­ist þó ekki að rík­is­stjórn­in sé að hand­stýra laun­um á hverju ári, rétt fyr­ir þinglok. Því muni launa­hækk­un­in standa. Þetta sagði hún í samtali við Morgunblaðið í dag.

„Ég sýni því full­an skiln­ing, að það veki gremju þegar það er samið um ákveðna teg­und launa­hækk­ana á al­menna vinnu­markaðnum eða jafn­vel op­in­berra og laun æðstu ráðamanna hækka um­fram það. Mér finnst það bara mjög eðli­legt.“

Laun þingmanna, ráðherra, forseta Íslands og æðstu embættismanna hækka um 5,6% næstu mánaðamót. Þingfararkaupið verður rúmlega 1,6 milljónir króna á mánuði eftir breytinguna og nemur hækkunin 85 þúsund krónum.

Laun ráðherra verða rúmar 2,6 milljónir króna en laun forsætisráðherra um 2,9 milljónir króna á mánuði. Laun forseta Íslands verða 4,25 milljónir króna og dómarar við Hæstarétt fá rúmar 2,7 milljónir króna.