Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað fjögurra manna starfshóp sem á að skila tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri þann 28. febrúar, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Hagræðingarhópurinn hefur þegar tekið til starfa.

Hópinn skipa Björn Ingi Victorsson formaður, sem er endurskoðandi og forstjóri Steypustöðvarinnar, Gylfi Ólafsson, hagfræðingur og fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Hildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum og fyrrverandi yfirlögfræðingur Ríkiskaupa, og Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri Landssambands eldri borgara (LEB) sem áður var deildarstjóri hjá Valitor.

Hópurinn mun m.a. vinna úr samráði ríkisstjórnar við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri sem lýkur í dag. Einnig verður litið til fyrri úttekta sem til eru um sama efni auk ábendinga frá forstöðumönnum hjá ríkinu og ráðuneytum.

„Ég vil þakka þjóðinni fyrir áhugann og aðstoðina í samráðinu. Við í ríkisstjórninni höfum mikla trú á þessari vinnu og hlökkum til að fá í hendur tillögur hagræðingarhópsins. Þetta er öflugur hópur með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og opinberum rekstri,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Fyrst og fremst rekstrarmaður

Björn Ingi Victorsson verður formaður hagræðingarhópsins og talsmaður .

„Ég er fyrst og fremst rekstrarmaður og kem inn í þetta sem slíkur en mér líst mjög vel á verkefnið og nálgun nýrrar ríkisstjórnar. Það eru víða tækifæri til að gera betur og við hlökkum til að taka þennan sprett,“ segir Björn.

Hagræðingarhópurinn. Björn Ingi Victorsson (til vinstri), Hildur Georgsdóttir (til hægri), Oddný Árnadóttir (til vinstri) og Gylfi Ólafsson (til hægri).
© Aðsend mynd (AÐSEND)