Í síðastliðnum mánuði hefur ís­lenska krónan styrkst um 1,9% gagn­vart sviss­neska frankanum. Gengi frankans hefur lækkað úr 155,6 krónum í 152,7 krónur á tíma­bilinu.

Þetta er jákvæð þróun fyrir þá Ís­lendinga sem hyggjast fylgja kvenna­lands­liðinu á Evrópu­meistaramótið í Sviss í næsta mánuði. Fyrsti leikur Ís­lands á Evrópumótinu í Sviss er gegn Finnum 2. júlí í Thun.

Frankinn hækkaði tals­vert í apríl þegar fjár­festar leituðu í örugga gjald­miðla eftir að Donald Trump kynnti nýjar tolla­að­gerðir og fjár­festar leituðu í aðra gjald­miðla en Bandaríkja­dal, m.a. sviss­neska franka.

Undið hefur ofan af þeirri þróun upp á síðkastið sam­hliða því að krónan er að styrkjast.

Á sama tíma­bili hefur krónan styrkst um 1,6% gagn­vart evru og hefur evran farið úr 145,9 krónum í 143,6 krónur.

Bandaríkja­dalur, sem hefur verið í sögu­legri lægð á árinu, hefur veikst tölu­vert gagn­vart krónunni.

Krónan hefur styrkst um 3,8% gagn­vart Bandaríkja­dal og farið úr 129,8 krónum í 124,9 krónur á einum mánuði.