Samstæða Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hagnaðist um 3,3 milljarða króna á síðasta rekstrarári. Þetta er nokkuð lakari afkoma en árið 2023 þegar hagnaðurinn nam 5,5 milljörðum. Þetta kemur fram í ársskýrslu KS fyrir síðasta ár.

Rekstrartekjur samstæðunnar jukust úr 54,6 milljörðum króna í 52,6 milljarða á milli ára. Rekstrargjöld hækkuðu úr 44,3 í 47,2 milljarða króna á milli ára. Launakostnaður hækkaði um milljarð eða úr 13,1 milljarði í 14,1 milljarð. Ársverk hjá samstæðunni voru 941 á síðasta ári samanborið við 958 árið 2023.

Eigið fé samstæðu KS, ásamt hlutdeild minnihluta, nam 61,3 milljarði króna um síðustu áramót og voru eignir metnar á 93,7 milljarða. Í lok árs 2023 nam eigið fé 58,6 milljörðum króna og eignir voru metnar á 88,6 milljarða. Handbært fé frá rekstri nam 4,8 milljörðum króna í lok síðasta rekstrarárs samanborið við 3,3 milljarða í lok árs 2023.

KS samstæðan

2024 2023 2022
Rekstrartekjur 54,6 52,6 50,7
Rekstrargjöld 47,2 44,3 42,7
Eignir 93,7 88,6 82,6
Eigið fé 61,3 58,6 53,3
Handbært fé frá rekstri 4,8 3,3 5,7
Hagnaður 3,3 5,2 1,7
Lykiltölur í milljörðum króna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.