Viðskiptaráð hefur óskað eftir að eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefji rannsókn vegna þess sem ráðið telur vera ólögmæta ríkisaðstoð sem veitt hefur verið í tengslum við niðurgreiðslur til húsnæðisfélaga á vegum þriðja aðila.
Viðskiptaráð rekur í kvörtuninni hvernig stjórnvöld veita umræddum húsnæðisfélögum þríþætta fjárhagslega meðgjöf: úthlutunum lóða á undirverði, beinum fjárframlögum í gegnum svokölluð stofnframlög, og niðurgreiddum fasteignalánum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Samanlagt jafngildir meðgjöfin 46% niðurgreiðslu stofnkostnaði nýrra íbúða samkvæmt áætlun ráðsins.
„Að mati Viðskiptaráðs grefur framangreint fyrirkomulag undan samkeppni og jafnræði milli þeirra sem starfa á húsnæðismarkaði, bæði innanlands og gagnvart aðilum frá öðrum EES-ríkjum. Þá er almannaeigum veitt í lokuð úrræði á vegum þriðja aðila.“
Beri að líta á þetta sem ólögmæta ríkisaðstoð
Ráðið segist telja þetta fyrirkomulag uppfylla öll skilyrði 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins um ólögmæta ríkisaðstoð: að hún sé veitt með opinberum fjármunum, veiti tilteknum aðilum fjárhagslegt forskot, sé sértæk og valdi röskun á samkeppni og geti haft áhrif á viðskipti innan EES svæðisins. Þá sé hún hvorki réttlætanleg á grundvelli 2. né 3. mgr. sömu greinar um lögmætar undanþágur eða á grundvelli annarra undanþága sem heimilar eru.
„Því beri að líta á aðstoðina sem ólögmæta ríkisaðstoð sem samrýmist ekki EES samningnum,“ segir í tilkynningu á vef Viðskiptaráðs.
„Þrátt fyrir að þessum húsnæðisúrræðum sé að nafninu til ætlað að styðja við tekjulága hópa, telur Viðskiptaráð að fyrirkomulagið standist ekki skilyrði þeirra undanþága sem heimilar eru samkvæmt 59. gr. EES-samningsins um þjónustu í almannaþágu. Bæði skortir formlegt umboð til viðtakenda og skýra afmörkun á markhópnum sem þjónustan á að ná til.“
Jafngildir 21 milljóna á hverja íbúð
Þegar hafa 1.600 íbúðir verið byggðar af húsnæðisfélögum á vegum þriðja aðila samkvæmt greiningu Viðskiptaráðs. Bent er á að af 9.250 íbúðum sem áformað er að rísi í Reykjavík á næstu árum eigi 3.070 íbúðir að vera byggðar af húsnæðisfélögum eða þriðjungur nýrra íbúða í Reykjavík.
Áformaðar niðurgreiðslur ríkis og sveitarfélaga nema 64 milljörðum króna sem jafngildir 21 milljón króna á hverja nýja íbúð.
„Þær íbúðar sem byggðar eru með þessum hætti eru síðan leigðar út af húsnæðisfélögunum á lægra verði en tíðkast á almennum markaði. Íbúðunum er einungis úthlutað til þeirra umsækjenda sem eru í aðild að þeim félögum sem reka þau húsnæðisfélög sem um ræðir, í flestum tilfellum verkalýðsfélög, og þannig ekki aðgengilegar öllum almenningi.“