Lánshæfisfyrirtækið Moody's Ratings tilkynnti í dag að formlega hefði verið tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku banka hf. í kjölfar þess að Íslandsbanki og Arion banki óskuðu báðir eftir að hefja viðræður við stjórn Kviku um samruna.

„Ekki liggur fyrir nein ákvörðun af hálfu stjórnar Kviku um framvindu,“ segir í tilkynningu Kviku til Kauphallarinnar.

Arion banki tilkynnti eftir lokun markaða þriðjudaginn 27. maí um að hann hefði óskað eftir samrunaviðræðum við Kviku. Íslandsbanki, sem birti samskonar tilkynningu morguninn eftir, óskaði eftir svari við bréfinu innan tveggja vikna. Íslandsbanki sagðist reiðubúinn að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum.

Arion og Íslandsbanki tilkynntu í dag um að Moody‘s hefði staðfest lánshæfismöt bankanna í kjölfar tilkynninga þeirra um áhuga á samrunaviðræðum við Kviku.