Kvika banki hefur ákveðið að hafna erindum Arion banka og Ís­lands­banka um að hefja form­legar sam­runa­viðræður.

Í til­kynningu sem bankinn birti í dag kemur fram að stjórnin hafi farið yfir erindin sem bárust þann 27. og 28. maí síðastliðinn og metið þau út frá virði Kviku. Niður­staða stjórnar er sú að erindin endur­spegli ekki virði félagsins og því séu ekki for­sendur fyrir því að hefja viðræður á þeim grunni.

„Að vel skoðuðu máli er það mat stjórnar Kviku að hvorki erindi Arion banka hf. né Ís­lands­banka hf. endur­spegli virði Kviku,“ segir í til­kynningunni. Því hafi þeim verið svarað neitandi.

Þrátt fyrir þá ákvörðun leggur stjórnin áherslu á að hún telji um­tals­verð tækifæri og verðmæti geta falist í sam­einingu með öðrum fjár­mála­fyrir­tækjum, hvort heldur er fyrir hlut­hafa eða við­skipta­vini. Stjórnin er því til­búin að endur­meta af­stöðu sína ef aðilar eru reiðu­búnir að endur­skoða þær for­sendur sem lagt var upp með um virði Kviku.