Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að ganga til samninga við þrjá aðila, Barclays, Citi og Kviku banka , um að vera umsjónaraðilar í fyrirhuguðu útboði ríkisins á hlutum í Íslandsbanka.

„Gert er ráð fyrir að samningum við aðilana þrjá verði lokið í þessum mánuði,” segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Fjársýsla ríkisins auglýsti í sumar fyrir hönd ráðuneytisins eftir umsjónaraðilum útboðsins, bæði á innlendum og/eða erlendum markaði.

„Mikill áhugi, ekki síst af erlendum aðilum, var á að taka að sér umsjón með næsta útboði ríkisins á hlutum Íslandsbanka, en hlutverk umsjónaraðila er að annast skipulagningu og yfirumsjón útboðsins m.a. utanumhald tilboðsbóka.“

Í júní síðastliðnum voru samþykkt á Alþingi lög um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf. Lögin fela í sér að hlutur ríkisins í bankanum verði seldur í almennu hlutafjárútboði eða útboðum.

Í lögunum er m.a. tilgreint með hvaða hætti safnað er í tvær tilboðsbækur í útboði, hvernig verðlagningu verði háttað og úthlutun fari fram.

Fjár­málaráðu­neytið samdi í júlí við Fyrir­tækja­ráð­gjöf Lands­bankans sem sjálf­stæðan fjár­mála­ráð­gjafa til að veita ráðu­neytinu ráð­gjöf varðandi skipu­lagningu og yfir­um­sjón á fyrir­huguðum út­boðum á eignar­hlut ríkisins í Ís­lands­banka.