Hlutabréfaverð Kviku banka hækkaði um 10,4% í 1,5 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Hækkunin fylgir í kjölfar þess að Arion og Íslandsbanki óskuðu báðir eftir samrunaviðræðum við Kviku. Auk þess tilkynnti Kvika um að Auður hefði hafið í dag innreið á húsnæðislánamarkað.

Gengi hlutabréfa Kviku stóð í 17,55 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar og hefur ekki verið hærra síðan í apríl 2022, þegar leiðrétt hefur verið fyrir arðgreiðslum.

Arion banki tilkynnti eftir lokun Kauphallarinnar í gær að hann hefði óskað eftir því að hefja samrunaviðræður við Kviku banka. Stjórn Íslandsbanka óskaði í morgun einnig eftir að hefja samrunaviðræður við Kviku og sagðist reiðubúin að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum.

Hlutabréf Arion banka hækkuðu um 1,5% í eins milljarðs króna veltu í dag og stóð gengi bankans í 175,5 krónum við lokun Kauphallarinnar. Gengi Íslandsbanka féll um 0,8% í 414 viðskiptum upp á samtals 2,1 milljarð króna og stendur nú í 117,5 krónum.

Alvotech hækkaði næst mest af félögum Kauphallarinnar í dag eða um 3,6% í 750 milljóna veltu. Líftæknifyrirtækið tilkynnti í morgun um sölusamning við lyfjafyrirtækið Advanz sem felur í sér greiðslu við undirritun og áfangagreiðslur, samtals að fjárhæð allt að 23 milljarðar króna.

Brim og Iceland Seafood International, sem birtu bæði uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung eftir lokun markaða í gær, hækkuðu bæði í viðskiptum dagsins.